Ístex býður upp á fjörtíuogsjö liti í Léttlopa og af því að ég er prjónaóð þá hef ég ákveðið að gera eina peysu í hverjum lit. Með því nota ég liti sem mér hefði annars ekki dottið í hug að hafa sem aðallit. Svona rétt til að halda prjóninu áhugaverðu. Það eru ekki föst tímamörk á verkefninu en ég hef hinsvegar hugsað mér að klára þetta á einu ári. Ég byrjaði í september og er því komin aðeins af stað.
Hér má sjá litina á vefsíðu Ístex: http://istex.is/islenska/vorur/prjonaband/lettlopi/
Hér má sjá litina á vefsíðu Ístex: http://istex.is/islenska/vorur/prjonaband/lettlopi/
Þetta er skemmtilegt,,,,,,,,,,en enn skemmtilegra væri ef þú sýndir okkur afraksturinn.
SvaraEyðaEn frábært hugmynd! Vá hvað ég hlakka til að fylgjast með
SvaraEyða