sunnudagur, 22. desember 2013

Litur 0867
Þetta er einn af uppáhaldslitunum mínum í léttlopa, dökkmórauður eða bara súkkulaðibrúnn. Mér finnst hann ganga vel með flestum litum. Rendurnar eru úr 0005, ljósmórauðum.
Munstrið fann ég í erlendri vettlingabók fyrir mörgum árum en er búin að gleyma hvað bókin hét.
Þessi fer í jólapakka og ég vona að viðtakandinn verði ánægður með hana.

þriðjudagur, 17. desember 2013

Litur 1403.
Þessi blái litur er bjartur og fínn. Ég hef notað hann áður og nota alltaf aðra bláa liti með honum. Ég hef sagt hér áður að mér finnast bláir litir erfiðir í notkun, en ætli þessi sé ekki skástur.
Munstrið er úr Sjónabókinni. http://www.heimilisidnadur.is/index.php/utgafa/sjonabok
Litur 9426.
Mér finnst þessi litur alveg frábær. Ég hef notað hann mikið í munstur en aldrei sem aðallit. Það getur bara vel verið að ég noti hann aftur. Munstrið er gamalt Ístex munstur sem að ég breytti aðeins.
http://istex.is/islenska/uppskriftir/vara/16365/
Litur 52
Hærusvartur. Munstrið er frá Ístex og er í Lopa 28, http://istex.is/prjonabok/Istex28.html
Litur sem ég nota mjög mikið og kemur alltaf jafn vel út.
 Litur 1416
Fallegur mosagrænn sem ég hef oft notað áður. Er ekkert mjög hrifin af litunum sem ég valdi í munstrið.
Munstrið er afbökun af munstri sem að ég fékk gefins.

sunnudagur, 24. nóvember 2013

Litur 9434
Fallegur hárauður sem ég mun örugglega nota aftur. Erfitt að taka mynd af munstrinu þannig að það sæist vel. En þetta munstur keypti ég hér: http://tincanknits.com/pattern-HUK-lush.html

Litur 1413.
Þetta fannst mér erfiður og væminn litur. Ég hugsa að ég noti hann ekki aftur.
Munstrið er þýskt vettlingamunstur sem að ég aðlagaði að lopapeysu.

Litur 9431
Ágætur litur og alveg hægt að nota aftur. Blómið í munstrinu er úr Sjónabókinni.
http://www.heimilisidnadur.is/index.php/utgafa/sjonabok

miðvikudagur, 13. nóvember 2013

Ég var að taka saman þá liti sem að ég er búin með. Þá kemur í ljós að litirnir eru 49 talsins en ekki 47 og því er titill síðunnar farinn fyrir lítið og ekki hægt að breyta honum, en það eru þá bara fleiri verkefni framundan. Ekki veit ég hvort að ég hef talið svona vitlaust í upphafi, eða hvort Ístex hafi gefið út tvo nýja liti nýlega. Ég hallast frekar að því að ég hafi talið vitlaust.

En svona lítur þetta út í dag:

5 hærusvartur
51 hvítur
52 sauðsvartur
53 mórauður
54 fölgrár
56 ljósgrár
57 grár
58 dökkgrár
59 svartur
85 ljósmórauður
86 ljósljósmórauður
867 dökkmórauður
1400 ljósbrúnn
1401 hnetubrún samkemba
1402 himnablá samkemba
1403 lapisblá samkemba
1404 jökulblágræn samkemba
1405 flöskugræn samkemba
1406 vorgræn samkemba
1407 grenigræn samkemba
1408 ljósrauð samkemba
1409 granatrauð samkemba
1410 appelsínugulur
1411 sólgul samkemba
1412 bleik samkemba
1413 lilla samkemba
1414 fjólublá samkemba
1415 úfinn sjór
1416 mýri
1417 kal
1418 spónn
1419 ax
1420 skuggi
9264 gulur
9414 dökkrauður
9417 dökkvínrauður
9418 blágrár
9419 hafblár
9420 dökkblár
9421 grágrænn
9422 grænn
9423 blágrænn yfirlitaður
9426 gulgrænn
9427 ryðbrúnn
9428 ljósvínrauður
9429 vínrauður
9431 dumbrauður
9432 gráfjólublár
9434 hárauður
Litur 9421
Munstrið er átta blaða rós, sem ég gerði sjálf, en er örugglega til í hundrað uppskriftabókum.
Þennan hafði ég ekki notað áður, en get vel hugsað mér að nota aftur. Ljúfur grágrænn.

Litur 1404
Munstrið er afmælismunstur Ístex: http://www.istex.is/islenska/uppskriftir/vara/17753/
Þessi litur fannst mér erfiður, svo rosalega tannkremsblár. Minnti mig á tannkremsmolann í gamla Mónu konfektinu sem enginn vildi borða :)
Litur 1420
Munstrið gerði ég sjálf, upp úr öðru munstri.
Þennan lit  hef ég notað oft og finnst hann ganga með nánast hvaða lit í munstri sem er.

laugardagur, 2. nóvember 2013

Litur 9417
Munstrið gerði ég sjálf.
Þenna lit nota ég mikið, finnst hann mjög fallegur. Hann er líklega aðeins dimmari en myndin gefur til kynna.
Litur 1418 
Munstrið er frá mér, þ.e. það eru örugglega til milljón munstur með áttblaða rós, en þessi er með haki á hverjum enda sem mér finnst gera mikið fyrir rósina.
Þessi finnst mér mjög falleg, og get vel hugsað mér að nota þennan lit aftur

Litur 1405
Munstrið er hluti af afmælismunstri Ístex, en S-ið teiknaði ég sjálf.
Litur 1411 
Munstrið gerði ég sjálf.
Mér finnst þessi litur ágætur, hef ekki notað hann áður en svo er hann bara ágætlega hlýr gulur.

Litur 9429
Munstrið er afmælismunstur Ístex: http://istex.is/islenska/uppskriftir/vara/17753/

fimmtudagur, 31. október 2013

Af hverju fjörtíuogsjö?

Ístex býður upp á fjörtíuogsjö liti í Léttlopa og af því að ég er prjónaóð þá hef ég ákveðið að gera eina peysu í hverjum lit.  Með því nota ég liti sem mér hefði annars ekki dottið í hug að hafa sem aðallit. Svona rétt til að halda prjóninu áhugaverðu. Það eru ekki föst tímamörk á verkefninu en ég hef hinsvegar hugsað mér að klára þetta á einu ári. Ég byrjaði í september og er því komin aðeins af stað.

Hér má sjá litina á vefsíðu Ístex: http://istex.is/islenska/vorur/prjonaband/lettlopi/