sunnudagur, 13. júlí 2014

Litur 0058
Dekksti grái liturinn í boði. Klassískur og svo sem ekki meira um það að segja.
Munstrið fékk ég hér og teiknaði upp: http://idaamalieshobbykrok.blogspot.com/2013/07/traktorer-x-3.html
Litur 0051
Hvítur. Fallegur og klassískur. Svo sem ekki meira um það að segja. Þetta munstur er frá Ístex
http://istex.is/islenska/uppskriftir/vara/16345/

fimmtudagur, 3. júlí 2014

Litur 0086.
Ljósljósmórauður.
Ánægð með litinn og munstrið. Munstrið er úr Sjónabókinni, og þessi litur gengur með nánast öllum öðrum litum.

Litur 1407
Grenigræn samkemba.
Er mjög ánægð með þessa peysu. Fallegir kaðlar og góður litur.