sunnudagur, 25. maí 2014

Litur 0053
Mórauður. Mér finnst þessi litur einn sá besti í litaröðinni og nota hann mjög mikið. Ég er afar ánægð með þess peysu. Munstrið er úr Ístex prjónabók nr.31, og heitir Haf. Hún er dálítið seinprjónuð en munstrið er svo fallegt að það er þess virði að sitja yfir þessu.
http://istex.is/prjonabok/Istex31.html
Litur 1419
Ax. Ég er ánægð með þessa útkomu, en ekkert sérstaklega hrifin af þessum lit.
Munstrið er úr Sjónabókinni.

Litur 9419
Hafblár. Góður litur sem að ég kem örugglega til með að nota aftur. Munstrið er úr Sjónabókinni.

laugardagur, 24. maí 2014


Litur 9420
Dökkblár. Mjög góður litur sem ég hef notað oft áður. Mér finnst hvítt munstur alltaf best í þennan lit.
Munstrið er úr Sjónabókinni.

þriðjudagur, 13. maí 2014

Litur 9422
Grænn. Mér finnst þessi ágætur. Munstrið er vettlingamunstur úr þýskri bók sem að ég man ekki lengur hvað heitir.

föstudagur, 2. maí 2014

Litur 9414
Dökkrauður. Er mjög hrifin af þessum lit og nota hann örugglega aftur. Ég er líka mjög hrifin af munstrinu og mun örugglega nota það aftur. Munstrið er úr Sjónabókinni.

Litur 1417
Kal. Mjög viðeigandi nafn. Ég er ekkert sérstaklega hrifin af þessum lit. Mér finnst hann of ljós.
En er ágætlega ánægð með útkomuna.
Þetta munstur er frá Ístex, http://istex.is/prjonabok/Istex12.html