þriðjudagur, 22. apríl 2014

Litur 59
Svartur. Ég hef ekki notað þennan áður. Mér hefur ekki endilega fundist fallegt að hafa litaðan svartan. Ég er hinsvegar mjög hrifin af honum þegar allt kemur til alls. Mér finnst líka koma mjög fallega út að hafa svona skarpa liti með.
Munstrið er úr sjónabókinni, þ.e. mörg munstur sett saman og aðlagað að lopapeysu.

mánudagur, 21. apríl 2014


Litur 1401
Hnetubrún samkemba. Fallegur brúnn með yrjum af rauðu, orange og grænum. Ég nota þennan lit mikið og finnst sá ryðbrúni koma mjög vel út með honum.
Munstrið er afbökun á munstri sem ég fékk gefinst.

sunnudagur, 6. apríl 2014

...og þá eru sautján litir eftir og tuttuguogtvær vikur þangað til fyrsti september rennur upp. Svo þetta er ennþá á áætlun hjá mér.

Þeir sautján sem eftir eru:
51 hvítur
53 mórauður
56 ljósgrár
57 grár
58 dökkgrár
59 svartur
85 ljósmórauður
86 ljósljósmórauður
1401 hnetubrún samkemba
1407 grenigræn samkemba
1417 kal
1419 ax
9414 dökkrauður
9419 hafblár
9420 dökkblár
9422 grænn
9423 blágrænn yfirlitaður
Litur 1414
Fjólublá samkemba. Fallegur og bjartur litur. Nota hann mjög líklega aftur. Ég er líka ánægð með litavalið í munstrinu.Munstrið er átta blaða rós, sem ég gerði sjálf, en er örugglega til í hundrað uppskriftabókum.
Litur 9428
Ljósvínrauður. Hef notað þennan nokkrum sinnum og er ánægð með hann. Munstið er blóm úr Sjónabókinni.

laugardagur, 5. apríl 2014

Litur 1406
Vorgræn samkemba. Sumarlegur litur og dálítið glannalegur en ég gæti alveg hugsað mér að nota hann aftur.
Munstrið er frá Ístex: http://istex.is/islenska/uppskriftir/vara/16365/
Litur 0054
Ljósasti grái liturinn. Fallegur og klassískur.
Munstrið er frá Ístex: http://istex.is/prjonabok/Istex01.html
Litur 0005
Sauðsvartur. Klassísk rennd herrapeysa.
Munstrið er frá Ístex og heitir Fugl: http://istex.is/prjonabok/Istex25.html
Litur 1409
Granatrauð samkemba. Er mjög ánægð með þennan lit og nota hann örugglega aftur.
Munstrið er úr Sjónabókinni sem ég aðlagaði að lopapeysu.