sunnudagur, 22. desember 2013

Litur 0867
Þetta er einn af uppáhaldslitunum mínum í léttlopa, dökkmórauður eða bara súkkulaðibrúnn. Mér finnst hann ganga vel með flestum litum. Rendurnar eru úr 0005, ljósmórauðum.
Munstrið fann ég í erlendri vettlingabók fyrir mörgum árum en er búin að gleyma hvað bókin hét.
Þessi fer í jólapakka og ég vona að viðtakandinn verði ánægður með hana.

þriðjudagur, 17. desember 2013

Litur 1403.
Þessi blái litur er bjartur og fínn. Ég hef notað hann áður og nota alltaf aðra bláa liti með honum. Ég hef sagt hér áður að mér finnast bláir litir erfiðir í notkun, en ætli þessi sé ekki skástur.
Munstrið er úr Sjónabókinni. http://www.heimilisidnadur.is/index.php/utgafa/sjonabok
Litur 9426.
Mér finnst þessi litur alveg frábær. Ég hef notað hann mikið í munstur en aldrei sem aðallit. Það getur bara vel verið að ég noti hann aftur. Munstrið er gamalt Ístex munstur sem að ég breytti aðeins.
http://istex.is/islenska/uppskriftir/vara/16365/
Litur 52
Hærusvartur. Munstrið er frá Ístex og er í Lopa 28, http://istex.is/prjonabok/Istex28.html
Litur sem ég nota mjög mikið og kemur alltaf jafn vel út.
 Litur 1416
Fallegur mosagrænn sem ég hef oft notað áður. Er ekkert mjög hrifin af litunum sem ég valdi í munstrið.
Munstrið er afbökun af munstri sem að ég fékk gefins.